Kynningarmyndband af frambjóðendum: Helgi Hlynur Ásgrímsson

Helgi Hlynur Ásgrímsson, sveitarstjórnarmaður á Borgarfirði eystri, bóndi, sjómaður, vert hjá Já Sæll Ehf Fjarðarborg og almennur lífskúnstner er 2. sæti á lista VG í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi. 

Sveitarfélagið er það stærsta á landinu að flatarmáli og nær frá Borgarfirði eystri, Seyðisfirði, Fljótsdalshéraði og niður í Djúpavogshrepp. Íbúafjöldi er um 5000. Kosið verður til sveitarstjórnar 19. september næstkomandi. 

Framboðslisti VG er skipaður einstaklingum vítt og breitt úr sveitarfélaginu sem hafa fjölbreyttan bakgrunn og sérfræðiþekkingu sem nýtast mun framboðinu vel í þeim stóru verkefnum sem framundan eru. 

VG – fyrir fólkið og umhverfið

Helgi Hlynur Ásgrímsson, skipar 2. sæti á framboðslista VG