Kosningum frestað

Sveitarstjórnarkosningum sem áttu að fara fram 18. apríl hefur verið frestað. Sveitarstjórnir Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar lögðu þetta fram við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vegna COVID-19 faraldurs.

Leitað var álits Ríkislögreglustjóra og Sóttvarnalæknis og átt samráð við Almannavarnanefnd Austurlands, Sýslumannsembættið á Austurlandi, yfirkjörstjórn, oddvita þeirra framboða sem fram eru komin, samgöngu-og sveitarstjórnarráðuneytið og dómsmálaráðuneytið.

Ráðleggingar Sóttvarnalæknis og Ríkislögreglustjóra eru að fresta fyrirhuguðum sveitarstjórnarkosningum á Austurlandi vegna COVID-19 faraldurs.
Enginn þeirra aðila sem samráð var haft við leggst gegn því að fresta kosningunum.

Ekki er að finna heimild í lögum til að fresta sveitarstjórnarkosningum og er því nauðsynlegt að leita samþykkis Alþingis. Veiti Alþingi samþykki fyrir frestun munu öll réttaráhrif sveitarstjórnarkosninganna falla niður. Í því felst m.a. að atkvæði sem greidd hafa verið falla niður. Samhliða verður öllum réttaráhrifum af gildistöku sameiningar sveitarfélaganna frestað þar til nýjar sveitarstjórnarkosningar fara fram. Í því felst að sveitarfélögin fjögur verða áfram starfandi.

Tillaga að nýjum kjördegi verður lögð fram þegar óvissuástandinu lýkur.