Kynningarmyndband af frambjóðendum: Andrés Skúlason

Andrés Skúlason, fyrrverandi oddviti Djúpavogshrepps er í 5. sæti á lista VG í nýju sameinuðu sveitarfélagi. Andrés hefur um árabil starfað á margvíslegum sviðum inn á vettvangi sveitarfélaga á Austurlandi jafnhliða því að vera virkur í pólitískustarfi VG þar sem hann á m.a. sæti í stjórn hreyfingarinnar. Andrés býður sig fram vegna einlægs áhuga síns á samfélagsmálum samhliða því að góður málstaður VG, í t.d. umhverfis og jafnréttismálum, hefur ekki verið nægilega sýnilegur innan svæðisins.