18. júlí

Fjallagrasaferð VG

Fjallagrasaferð í boði VG á Austurlandi verður farin frá Laugarfelli, laugardaginn 18.júlí n.k. Hér er snilldar tækifæri fyrir VG félaga, skráða sem og óskráða, til að gera sér glaðan dag saman, njóta náttúrunnar og frábærs félagsskapar. Farið verður í létta þriggja tíma göngu um svæðið og á eftir verður boðið upp á kaffi og meðlæti, slökun í potti ef fólk vill, almennt spjall og samveru.

Gangan hefst klukkan 13:00 við gistihúsið að Laugarfelli og kaffiveitingar um klukkan 16:00. Sameinist endilega í bíla, bjóðið vinum með og hafið sundfötin meðferðis. Verð fyrir kaffi og laug er 3500 fyrir fullorðna en 2500 fyrir 3 – 12 ára. Allir VG félagar eru hvattir til að mæta.

Stjórn svæðisfélags VG á Austurlandi