Heilbrigðisþjónusta er ein grunnstoða samfélagsins og gott aðgengi að heilbrigðisþjónustu mikið hagsmunamál fyrir íbúa sveitarfélagsins. Leggja þarf áherslu á lýðheilsumál og beita heilsueflandi hugsun við ákvarðanatöku, skipulag og framkvæmdir, með vellíðan allra íbúa að leiðarljósi.
- Þrýsta þarf markvisst á um úrbætur í heilbrigðisþjónustu og nota til þess heilbrigðisstefnu til 2030.
- Standa þarf vörð um og efla heilsugæslu m.a. bráðaþjónustu á Egilsstöðum.
- Styðja þarf enn betur við Austurlandslíkanið og stuðla að frekara samstarfi milli fagaðila.