Umhverfis- og loftslagsmál

Meðal mikilvægustu málefna samtímans eru umhverfis- og loftslagsmál og leggur framboð VG ríka áherslu á að þeim sé sinnt af krafti á vettvangi nýs sveitarfélags. Mikilvægt er að unnin verði heildstæð stefna fyrir sveitarfélagið í umhverfis- og loftslagsmálum.

  • Vinna þarf umhverfisáætlun sem snýr að sveitarfélaginu sjálfu og starfsemi þess. 
  • Tryggja þarf kennslu í umhverfis- og loftslagsmálum á öllum skólastigum og auka umhverfisvitund og vilja til aðgerða í samfélaginu.
  • Vinna þarf aðgerðaáætlun í loftslagsmálum fyrir sveitarfélagið í samræmi við markmið um kolefnishlutlaust Ísland 2040 og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
  • Huga þarf að sorphirðu og úrgangsmálum í sveitarfélaginu þar sem í auknum mæli verður að líta á úrgang sem hráefni til endurnýtingar. Vinna þarf að því að loka urðunarsvæðum.

Önnur stefnumál

Atvinna
Heilbrigðismál
Íþróttir og tómstundir
Mannréttindi
Menningarmál
Menntun
Náttúruvernd
Sameiningin
Samgöngur
Skipulagsmál